Hæhæ.
Jæja þá er ég búin að vera hérna í Bandaríkjunum 1 mánuð !
:D
Hef ekki fundið nógu mikinn tíma til að blogga undanfarið, búið að vera alveg frekar mikið að gera. En ég ætla að segja frá ferðalaginu og svo svona því merkilegasta sem hefur gerst hjá mér J Bara að vara ykkur við að þetta blogg verður laaaangt..
Hef ekki fundið nógu mikinn tíma til að blogga undanfarið, búið að vera alveg frekar mikið að gera. En ég ætla að segja frá ferðalaginu og svo svona því merkilegasta sem hefur gerst hjá mér J Bara að vara ykkur við að þetta blogg verður laaaangt..
Ferðalagið og fyrstu dagarnir.
Fimmtudagur: Ég og Grétar hittumst á flugvellinum um 8 um
morguninn og tjékkuðum okkur inn. Svo var bara að kveðja fjölskylduna, það tók
smá tíma og svo fórum við bara í öryggistjékkið og það. Við tjilluðum bara í
flugstöðinni í svona tvo tíma og svo fórum við að labba að hliðinu, fara í
gegnum vegabréfaeftirlitið og það. Svo tók við 6 tíma flug til New York og við
komumst að því að það var sænskur skiptinemi í flugvélinni með okkur, komumst
reyndar bara að því þegar við vorum komin út úr flugstöðinni úti. Þegar við
lentum New York tók við lööööng röð í immigration tjekkið. Held að það hafi
liðið tveir tímar frá því að vélin lenti og þangað til við komumst í gegnum
þetta tjékk. Svo var einhver AFS kona sem tók á móti okkur. Grétar fór í sér
leigubíl á annann flugvöll eða ehv því hann þurfti að taka annað flug en ég og
Amanda(sænski skiptineminn) fórum saman í leigubíl á annað hótel. Þar voru
fullt af skiptinemum og við vorum öll bara í tölvunni eða að horfa á
Ólympíuleikanna til að drepa tímann. Þarna voru krakkar frá Svíþjóð, Noregi,
Danmörku, Þýskalandi, Taílandi, Ítalíu og örugglega einhverjum fleiri löndum.
Svo klukkan sex fór ég uppí rútu með svona 20 krökkum. Ég hélt að þessi
rútuferð myndi taka svona 2 tíma en hún tók 5 og hálfann tíma því við þurftum
að stoppa til New Jersey því að einhverjir krakkar fóru út þar. Ekki það
skemmtilegasta sem ég hef gert. Við semsagt fórum í þessari rútu á annað hótel
þar sem arrival námskeiðið var og þegar við komum fórum við öll bara beint uppí
herbergi að sofa.
| Basic flugvélamynd |
Föstudagur: Vöknuðum um 8 leytið, klæddum okkur og gerðum
okkur til og fórum svo niður í morgunmat á hótelinu klukkan 9. Eftir matinn
fórum við aftur í herbergin og tókum dótið okkar út því við áttum að vera komin
útúr herbergjunum klukkan 11. Svo tókum við bara dótið og fórum með það inní
fundarherbergi þar sem það var farið yfir fullt af hlutum með okkur. Svo
klukkan tvö kom fjölskyldan að sækja mig og við keyrðum bara heim sem tók svona
einn og hálfann tíma. Svo þegar við komum heim þurfti ég að fara í einhverja
læknisskoðum svo ég geti æft fótbolta hérna úti. Svo tók ég bara uppúr töskunum
og slakaði á og svo seinna um kvöldið fór ég út með Carissu að hitta vini
hennar. Svo komum við heim um 12 leytið og fórum bara beint að sofa.
Laugardagur: Vöknuðum klukkan 8 og fórum yfir til systur
Traci, Heather og gerðum maís. Við semsagt þurftum að taka allt græna dótið
utan af og svo var þetta soðið og svo skárum við maísinn af. Við vorum í alveg
þrjá tíma að þessu en þetta var samt mjög gaman. Svo borðuðum við bara
hádegismat hjá þeim og fórum svo heim og höfðum okkur til og fórum svo út að
borða. Svo fórum við bara heim og fórum snemma að sofa, eða allavegna ég þar
sem ég sofnaði klukkan 10.
Sunnudagur: Fórum í kirkjuna um hálf 10 leytið. Kirkjan
hérna er allt öðruvísi en venjuleg kristin kirkja á Íslandi. Ég fer fyrst í hóp
með krökkum á high school aldri og við erum í klukkutíma að tala saman um
eitthvað úr biblíunni eða eitthvað svoleiðis. Svo er messan í svona 2-2 og hálfann
tíma. Fyrsta klukkutíman er hópur af svona 8 að syngja og allir syngja með og
svoleiðis, svo talar presturinn í svona klukkutíma eða rúmlega það. Svo eftir
messuna var koddaslagur í youth group-num í kirkjunni. Ég fór þangað með
Carissu, Braden og Reed og við vorum þar til svona 3 minnir mig og fórum svo
bara heim.
Fjölskyldan er mjög fín og húsið mjög flott. Er alveg frekar
stórt og er á þremur hæðum. Herbergið mitt er mjög fínt og alveg semí stórt og
með frekar stóru rúmi, sem ég nýti mér alveg. F
Það er alveg búið að vera frekar mikið að gera þennan fyrsta mánuð hjá mér. Skólinn er kominn á fullt og dagarnir alveg semí pakkaðir.
Það er alveg búið að vera frekar mikið að gera þennan fyrsta mánuð hjá mér. Skólinn er kominn á fullt og dagarnir alveg semí pakkaðir.
| Stærsti hlutinn af herberginu mínu |
Venjulegur vikudagur er þannig að ég þarf að vakna um 6:30
til að gera mig til fyrir skólann, svo förum ég Reed og Braden í skólabílinn um
7:15. Svo er skólinn frá 8:03 til 3:06 og þá þarf ég nánast að hlaupa í skápinn
minn til að taka bækurnar sem ég þarf að taka með mér heim, troða þeim í
töskuna mína og drífa mig yfir í klefann þar sem við skiptum um föt fyrir
fótboltaæfingu, æfingarnar eru yfirleitt búnar milli 5:30 og 6. Þegar ég kem
heim geri ég bara heimavinnuna og slaka smá á og fer snemma að sofa.
Mér líst mjög vel á skólann, krakkarnir mjög fínir og kennararnir líka. Veit ekki hvað ég hef þurft að segja eftirnafnið mitt oft síðan ég kom hingað, allvegna mjööög oft og enginn virðast ná að segja það rétt. Það finnst öllum það fáranlega langt og ótrúlega erfitt að segja það, ég þurfti einhvern tímann að skrifa nafnið mitt niður á æfingu, man ekki afhverju en allt liðið þurfti að horfa á mig skrifa það, það var alveg frekar fyndið.
En já stundataflan
mín er svona:
1. Home room(förum alltaf þangað í fyrsta tíma og gerum bara heimavinnu ef við þurfum þess eða við getum farið að hitta kennara ef við eigum erfitt með eitthvað í einhverju fagi. Ég þarf yfirleitt ekkert að læra í þessum tímum þannig ég fer oft yfir í stofuna við hliðiná minni með nokkrum stelpum úr fótboltanum því sú stofa er loftkæld og það er alveg frekar heitt í þeim stofum sem eru ekki loftkældar, ég held að það verði ekkert mikið lengur samt því það er aðeins farið að kólna, er samt alveg uppí 30°C ennþá samt yfirleitt svona 25°C.)
2. Chemistry
3. Algebra 2
4. Foundations of fitness(man ekki alveg nafnið á þessum tíma en við erum bara að lyfta og svoleiðis)
5. Study hall(bara að gera heimavinnu)
6. Sociology
7. Matur
8. History of government
9. Enska
10. Spænska.
1. Home room(förum alltaf þangað í fyrsta tíma og gerum bara heimavinnu ef við þurfum þess eða við getum farið að hitta kennara ef við eigum erfitt með eitthvað í einhverju fagi. Ég þarf yfirleitt ekkert að læra í þessum tímum þannig ég fer oft yfir í stofuna við hliðiná minni með nokkrum stelpum úr fótboltanum því sú stofa er loftkæld og það er alveg frekar heitt í þeim stofum sem eru ekki loftkældar, ég held að það verði ekkert mikið lengur samt því það er aðeins farið að kólna, er samt alveg uppí 30°C ennþá samt yfirleitt svona 25°C.)
2. Chemistry
3. Algebra 2
4. Foundations of fitness(man ekki alveg nafnið á þessum tíma en við erum bara að lyfta og svoleiðis)
5. Study hall(bara að gera heimavinnu)
6. Sociology
7. Matur
8. History of government
9. Enska
10. Spænska.
Fótboltinn er mjög fínn. Svolítið erfitt fyrstu tvær
vikurnar því það var svo ógeðslega heitt og fáranlega rakt loft og við vorum að
æfa í 5 tíma á dag. Frá 8-10:30 var yfirleitt hlaup og stundum smá fótbolti og
svo sprettir í lokin. Og svo frá 2:30-5 þá var fótbolti og svo aftur sprettir í
lokin. Þessar tvær vikur voru ógeðslega erfiðar en skila sér vel útá fótboltavellinum
núna þar sem við virðumst yfirleitt vera í betra formi en liðin sem við höfum
spilað við.
Er búin að spila held 6 eða 7 leiki fyrir skólaliðið. Fyrstu þrír leikirnir voru á Scrimmage day(æfingadagur) og við unnum alla og ég skoraði 3 mörk fyrir varsity liðið. Svo erum við búnar að spila fjóra leiki í móti núna og búnar að vinna alla, mér hefur ekki enn tekist að skora en ég er búin að fá færi til þess en það hlítur að fara að koma, er yfirleitt að spila frammi eða á vinstri kanti. Fótboltatímabilið er bara þrír mánuðir og allir leikirnir alveg semí þéttir saman. Spiluðum fjóra leiki á 8 dögum. Eru yfirleitt 2-4 leikir í viku. Eigum skráða 18 leiki núna en ef okkur gengur mjög vel komumst við í District og þá spilum við fleiri leiki, veit samt ekki alveg hvernig þetta virkar haha.
Er búin að spila held 6 eða 7 leiki fyrir skólaliðið. Fyrstu þrír leikirnir voru á Scrimmage day(æfingadagur) og við unnum alla og ég skoraði 3 mörk fyrir varsity liðið. Svo erum við búnar að spila fjóra leiki í móti núna og búnar að vinna alla, mér hefur ekki enn tekist að skora en ég er búin að fá færi til þess en það hlítur að fara að koma, er yfirleitt að spila frammi eða á vinstri kanti. Fótboltatímabilið er bara þrír mánuðir og allir leikirnir alveg semí þéttir saman. Spiluðum fjóra leiki á 8 dögum. Eru yfirleitt 2-4 leikir í viku. Eigum skráða 18 leiki núna en ef okkur gengur mjög vel komumst við í District og þá spilum við fleiri leiki, veit samt ekki alveg hvernig þetta virkar haha.
Ég er búin að fara á þrjá fótboltaleiki hjá
skólaliðinu(amerískur fótbolti). Skil þessa íþrótt engann veginn, eina sem ég
skil eru touchdowns haha. En liðið okkar er alveg frekar lélegt og búið að tapa
öllum leikjunum frekar stórt, fólk er ekkert mikið að búast við því að þeir séu
að fara að vinna leiki. Samt mjög gaman að fara og hitta stelpurnar úr
fótboltanum og fólk úr skólanum.
Ég fór með fjölskyldunni til Colarado og Wyoming um miðjan
ágúst. Var mjög gaman. Fórum af stað á þriðjudagskvöldi og þetta var 32-34 tíma
bílferð, kom mér á óvart hvað það var samt gaman haha. Við fórum í gegnum fullt
af fylkjum þannig ég get sagst hafa komið til held ég svona 11-12 fylkja man
ekki alveg Traci var að telja þetta upp um daginn.
Við stoppuðum meðal annars í Mount Rushmore, Crazi horse og
keyrðum í gegnum Badlandsnational park á leiðinni.
| Badlands |
| Badlands, var ógeðslega mikið rok |
| Mount Rushmore og fánar allra fylkjanna |
| Mount rushmore |
| Crazy horse, ekki nærrum því tilbúið. Er í minningu um einhvern indjána |
| Hvernig þetta á að líta út, fyrir utan konuna sem var að þvælast fyrir þegar ég tók myndina. |
Við gerðum margt mjög skemmtilegt á þessum 5 dögum sem
ferðalagið tók. Við stoppuðum í Wyoming í eina nótt og hittum ættingja Traci
minnir mig, skoðuðum okkur aðeins um í Cheyenne minnir mig og fórum svo í moll
að versla, það var mjög gaman. Svo um kvöldið fórum við að borða á Casa Bonita,
mexíkanskur staður, maturinn er alltí lagi en það er en maður er frekar að fara
þarna fyrir showið, meðan maður borðar getur maður horft á allskonar
skemmtiatriði og svo eru einhverjir kallar að labba um og spila tónlist og
svoleiðis.
| Casa Bonita |
Eftir matinn fórum við bara á hótelið okkar í Denver,
tjékkuðum okkur inn og fórum að sofa. Daginn eftir hittum við aðra ættingja
Traci og fórum í bíltúr með þeim allann daginn, svo fórum við út að borða aftur
um kvöldið. Svo á laugardeginum fórum við í fiðrildagarð, ógeðslega flott, við
vorum þar í svona 4 tíma sirka og svo fórum við aftur af stað heim það voru aðrir 34
tímar. Við komum heim klukkan 3 aðfaranótt mánudags því við stoppuðum frekar
oft á leiðinni, og ég þurfti svo að fara á æfingu klukkan 8 um morguninn daginn
eftir, var freeekar þreytt.
| Fékk loksins Mcdonalds :) ! |
| Fiðrildagarðurinn |
![]() |
| Fiðrildagarðurinn |
Svo núna síðustu helgi fór ég til Baltimore með AFS. Scott
keyrði mig, Signe (Danmörk),Tim (Þýskaland) og Johana (Þýskaland) til Harrisburg á
laugardaginn og við gistum yfir nótt hjá konu sem var að sjá um þessa ferð. Við
vorum komin til hennar um hálf 9 minnir mig og fórum bara að horfa á sjónvarpið
og svo tiltölulega snemma að sofa því við þurftum að vakna klukkan 7 á
sunnudeginum. Við fórum keyrandi til Baltimore, tók svona einn og hálfann tíma.
Þegar við vorum komin þangað hittum við hina skiptinemana, vorum 16 í heildina.
Við byrjuðum á því að fara í aqarium-ið þarna. Það var á alveg 4 hæðum minnir mig, bjóst samt við að það væri
merkilegra en það var, allir voru búnir að tala um hvað það væri geðveikt
flott. Við vorum allann tímann á höfn sem var risastór og flott fullt að skoða.
Við fórum á hard rock og fengum okkur hádegismat og fengum okkur svo göngutúr
um höfnina og öllum stelpunum til mikillar ánægju fundum við búðir og meðal
annars h&m, held að við höfum verið þar inni í allavegna klukkutíma,
vorkenndi Tim sem villtist með okkur þarna inn haha. Svo um 5-leytið fórum við
heim og ég var komin heim um 9-leytið og fór þá bara að gera heimavinnuna mína.
| Hópurinn í Baltimore, 16 skiptinemar og 3 host systkini |
| Bangladesh og Þýskaland |
Jæja, ég held að þetta sé svona það helsta sem er búið að
gerst hjá mér á fyrsta mánuðinum, ætla að reyna að láta ekki líða svona langt
þangað til ég blogga næst.
Een þangað til næst J
-Margét
