Monday, November 26, 2012

Thanksgiving og fleira..


Hæhæ. J

Ákvað að henda inn einu stuttu bloggi um thanksgiving fríið. Ég er búin að vera í fríi síðan 16. Nóvember en fer aftur í skólann á morgunn.
Held að þetta blogg verði ekki með neinum myndum, hef ekki aalveg verið að standa mig í að taka myndir haha.

Mánudagur
Ég vaknaði alveg eldsnemma og fór á körfuboltaæfingu klukkan 7:30-9:30. Eftir æfinguna dreif ég mig heim í sturtu og svo beint út í bíl því við vorum að fara að versla.
Áður en við fórum að versla fórum við að borða á einhverjum indverskum stað. Scott og Traci fannst það alveg roosalega gott en okkur krökkunum mér, Reed og Braden fannst þetta ekkert spes svo við borðuðum ekkert mikið haha.
Við fórum í outlet sem er svona einum og hálfum tíma frá héðan. Risa stórt, þetta er ekki beint mall, maður þarf að fara út til að fara inní næstu búð. Samt 100 búðir þarna og meðal annars forever 21, gladdi mig mjög mikið að sjá það og ég eyddi góðum tíma þar inni. En ég náði að klára að kaupa allar jólagjafir svo ég fer að verða tilbúin að senda þær heim núna fljótlega.
Við vorum í þessu outletti til alveg 6 þannig við fórum á five guys að borða, bara voða venjulegur hamborgarastaður. Svo vorum við komin heim um 8 leytið og vorum bara í rólegheitunum og fórum svo bara að sofa.

Þriðjudagur
Fékk að sofa smá út. Var ekki æfing fyrr en klukkan 11. Eftir æfinguna vorum við að þrífa kjúklingaskúrinn sem þau eru með. Þau voru með kjúklinga fyrir einhverju síðan og voru að láta allt ógeðið þorna svo það væri auðveldara að þrífa. Held við höfum ekki gert neitt meira eftir það, bara rólegur dagur.

Miðvikudagur
Fór á æfingu 7:30-9:30. Kom svo heim og við vorum að vinna í garðinum til 3-leytið. Svo fór ég með Traci að sækja Carissu, þvi hún fékk ekki frí í skólanum nema á fimmtudaginn og föstudaginn. Eftir það horfðum við bara á mynd og slökuðum á restina af deginum.

Fimmtudagur
Thanksgiving. Var ekkert voðalega merkilegt, samt mjög gaman að fá að upplifa þetta J Skólinn er búinn að vera í fríi síðan þarsíðasta föstudag, 16. Nóv. Á fimmtudagsmorguninn vaknaði ég um 9-leytið og við horfðum á Macy´s parade í sjónvarpinu. Þetta er eiginlega bara skrúðganga í New York og það eru fullt af skemmtiatriðum, fullt af frægu fólki sem kemur og ehv. Þetta var búið um 12 og við fórum til bróður Traci um 1-leytið og borðuðum þar. Það var bara venjulegur thanksgiving matur, kalkúnn, mashed potatoes, fylling og gravy. Og svo pies í eftirmat. Mjööög gott. Svo horfðum við á fótbolta, þau eiga 60 tommu sjónvarp, alveg freeekar stórt haha. Svo þegar við vorum orðin þreytt á að horfa á fótbolta skoðuðum við í blöðum hvar væru bestu útsölurnar, því black Friday er alltaf á föstudeginum eftir thanksgiving og þá eru klikkaðar útsölur alls staðar. Svo spiluðum við bara smá og fórum svo heim um 7-leytið.
Sumar búðirnar byrja afslættina á fimmtudagskvöldinu þannig ég Traci og Carissa fórum í Sears klukkan 8 og þær keyptu einhverjar jólagjafir, var ekkert rosalega mikið fólk þá. Við vorum örugglega í svona 2 tíma í Sears og fórum svo bara heim að sofa.

Föstudagur
Vöknuðum við klukkan 3:30 um nóttina og fórum aftur í mollið, því þá voru allar búðirnar byrjaðar með afslættina. Ég keypti ekkert mikið, fór bara í hollister enda hafði ég verslað alveg slatta þegar við fórum í outlettin á mánudeginum áður. Fyrst vorum við ekki nema í klukkutíma í mollinu og ætluðum að fara í Samsclub og fá frían morgunmat, því þau höfðu auglýst að þau voru með frían morgunmat. Við vorum komnar þangað um 5 leytið og sáum að það var röð fyrir utan þannig við bjuggumst við því að þau myndu opna um 5:30-leytið. En neinei þau opnuðu ekki fyrr en klukkan 7 og við nenntum ekki að bíða svo lengi á bílastæðinu. Þannig við fórum í Toys‘r‘us og Traci skoðaði jólagjafir fyrir strákana.
Eftir það fórum við aftur í mollið og skoðuðum meiri jólagjafir og svona. Við vorum í einni búð um leið og hún opnaði og þá upplifði ég ekta black Friday haha. Það var einhvers konar plata sem maður gat eldað fullt af dóti á á 8 dollara, kaffivél á svipuðu verði og ferðatöskur minnir mig líka á 8 dollara. Við löbbuðum framhjá þar deildinni með þessum hlutum og það var sjúúklega mikið fólk þarna haha. Svo voru raðirnar á kassana í gegnum alla búðina og nánast allir með þessa pönnu sem var á afslættinum. Alveg frekar fyndið að labba framhjá röðinni og sjá alla með þetta.
Við fórum aftur í samsclub klukkan 7 og fengum þennan morgunmat sem var kanilsnúður og epli. Við bjuggumst við einhverju hlaðborði en þetta var það eina haha. Svo drifum við okkur heim því ég var að fara að keppa í körfubolta klukkan 9 og þurfti að vera mætt í skólann klukkan 8:15.
Við komum heim rétt fyrir 8 og ég klæddi mig og fór aftur út. Besti undirbúningur í heimi fyrir leik að sofa í fjóra tíma og versla í 5 tíma.
En já ég var að spila fyrsta körfuboltaleikinn minn haha, hafði eeenga hugmynd um hvað ég var að gera en það er alltí lagi, þetta var mjög gaman samtJ.
Ég var komin heim aftur um 12-leytið og svo var bara afslöppun restina af deginum.

Laugardagur
Svaf út og var bara í rólegheitunum til 3. Þá fórum við heim til vinahjóna Traci og Scott og fórum með þeim og börnunum þeirra út að borða og á murder mistery. Þetta var þannig að komust bara ákveðið margir inn og fólk sat og borðaði í 4 herbergjum og það var leikrit í gangi allann tímann sem við vorum að borða. Einhver var drepinn og fólk var að reyna að finna út hver morðinginn var. Og það voru nokkrir gestir valdir til að vera hluti af leikritinu en þau vissu ekkert hvað þau voru að gera. Alveg frekar fyndið. Þetta var til svona 10 og svo fórum við bara heim.  Þetta var alveg frekar langt í burtu frá að heiman þannig við vorum komin heim klukkan 1 og fórumbara beint að sofa.

Sunnudagur
Gerðum ekkert mikið, fórum í kirkjuna og svo bara heim. Tjilluðum restina af deginum. Ég, Traci, Reed og Braden horfðum á allar Santa Claus myndirnar og fórum svo bara að sofa.

Mánudagur (í dag)
Ég vaknaði um 10-leytið og við skreyttum allt húsið. Það tók alveg freekar langann tíma, þau voru byrjuð þegar ég kom niður og við kláruðum núna um 3-leytið. Svo fór ég bara upp og byrjaði þetta blogg og svo er ég að fara á æfingu í kvöld og svo þarf ég víst að gera einhverja heimavinnu þar sem skólinn byrjar á morgunn.

Ég held að þetta sé allt í þetta skiptið J
-Margrét

Tuesday, November 6, 2012

<3<3Jæja loksins blogg. Biðst afsökunar á bloggleysinu, hefur einhvern veginn alltaf eitthvað annað verið að gera en að setjast niður og blogga.

Ég bloggaði síðast um miðjan september, alveg heellingur búið að gerast síðan þá. Ætla að segja frá þvi helsta sem hefur gerst, vona að ég gleymi ekki neinu merkilegu.

Næst síðustu helgina í september var Hayride hérna heima hjá mér. Þetta er haldið af kirkjunni, fjölskyldan mín bauð bara fram húsið sitt, þar sem þau eiga alveg freeekar stórt hús, stóra lóð og stórann bílskúr haha. Þetta er semsagt árlegur atburður í kirkjunni, þegar það er gott veður koma yfirleitt 160-180 manns, held það hafi verið svona 120 í ár. Allir koma um 5-leytið, borða og svo bara tjill. Þetta heitir Hayride þvi þau eru með alveg frekar stórann vagn tengdann aftan í tractor, og Scott keyrir fólkið um og maður situr á heyböggum, alveg frekar nett. En já útaf þessu vorum við með svín í garðinum frá mánudegi til miðvikudags. Scott skaut það á miðvikudeginum, tók öll innyflin og það úr og fór með það  í geymslu þar til á föstudeginum þar sem það var sett í einhvað eins og stórt grill til að elda það og það var eldað í sólarhring. Var alveg frekar gott J Svo var líka pie-keppni þarna, ég var í dómnefnd, alveg frekar fínt fekk fullt að borða haha J

Fyrstu helgina í október var AFS námskeið. Við fórum saman fjórir skiptinemarnir hérna á svæðinu ég, Signe, Tim og Johana og Carissa(host systir min) keyrði okkur. Þetta var tvo tíma í burtu. Þegar við komum þangað sem námskeiðið var tjilluðum við bara í smá stund með öllum hinum skiptinemunum og fórum svo að borða. Eftir matinn fórum við aftur út og satum öll i kringum bonfire(eld) og borðuðm smores. Fórum svo aftur inn og þá  var fyrirlestur í örugglega 2 tíma, held að þetta hafi verið lengstu tveir tímar lífs míns,  var svo ógeðslega þreytt og alveg að sofna nánast allann tímann. Svo eftir það fórum við bara að sofa.
Vöknuðum daginn eftir, fórum og fengum okkur morgunmat og svo var annar fyrirlestur, samt skárri en daginn áður. Svo fórum við í teambulding í svona klukkutíma, þar var mjög gaman. Svo eftir það var hádegismatur. Eftir matinn fórum við zip lineing, var óógeðslega gaman. Svo var annar fundur eða fyrilestur og svo fórum við bara heim.
ég og Signe(Danmörk) tilbúnar að fara zip-lineing
Haha, Harry(Kína) ætlaði að fara á hvolfi en setti fæturna einhvern veginn vitlaust uppá línuna og festist, reif buxurnar sínar.
SNACKS! Eitthvað svona til að narta í á milli stóru máltíðanna í matsalnum. Get svo svarið það að við borðuðum stanslaust þessa helgi.
Helgina 19.-21. Október var homecoming helgin.  Á föstudeginum var bara venjulegur skóladagur þangað til í síðasta tímanum var pep-rally. Það var ekkert voðalega merkilegt, bara allir í íþróttasalnum. Voru einhverjar keppnir og svo var keppni hverjir gætu öskrað hæst á milli allra árganganna. Mest keppni á milli seniors og juniors og juniors unnu, ekki sanngjarnt þar sem við vorum miiklu háværari en þau. Svo seinnipartinn var parade í Watsontown, allir árgangarnir voru búnir að gera float, og svo var svona hálfgerð skrúðganga og allir sem voru í skrúðgöngunni voru að gefa nammi. Svo um kvöldið var homecoming fótboltaleikurinn. Var mjög gaman og við actually unnum leikinn, fyrsti leikurinn á tímabilinu. Junior-arnir héldu áfram að stela verðlaunum af okkur seniors þar sem þau unnu líka fyrir flottasta homecomming float, ekki sanngjarnt þar sem okkar var miklu flottari.
Á laugardeginum var svo ballið. Við fórum stór hópur saman, hittumst svona klukkutíma fyrir ballið og tókum myndir og fórum svo á ballið. Það var ekkert spes, eiginlega eins og grunnskólaball, var haldið í skólanum og búið klukkan 10:30. Eftir ballið fór ég svo bara heim.
The parade, Klappstýrurnar, kemur smá myndasyrpa frá þessu :)
Freshmens
Aftur
Sophmores

Juniors, náði ekki nógu góðri mynd, var of upptekin að grípa nammi, en þetta var þannig að strákurinn á að vera að gera málverk af stelpunni. Þetta vann...
Seniors, klárlega flottast

Homecoming

Á sunnudeginum eftir kirkju fór ég með youth group-num i kirkjunni á svona shooting range þar sem við gátum prófað allskonar byssur. Ótrúlega gaman.
byssó


Þar síðasta föstudag fór ég með fótboltanum á haunted house, það var ótrúlega gaman haha gott hópefli. Svo daginn eftir spilaði ég svo síðasta fótboltaleikinn minn þangað til ég kem heim. Við komust semsagt áfram í district keppnina en töpuðum fyrsta leik. Spiluðum í heildina 19 leiki, unnum 17 töpuðum tveimur. Een ég fer svo í körfubolta núna fljótlega til að halda mér í formi. J

Svo eins og fkestir vita þá var fellibylurinn Sandy að fara yfir Bandaríkin núna í síðustu viku. Við áttum að fá mjög slæmt veður her þannig það var enginn skóli á mánudeginum né þriðjudeginum. Veðrið var samt ekkert svo slæmt her hefðum alveg getað farið í skólann báða dagana, var samt mjöög þægilegt á fá auka frídaga, en við þurfum víst að bæta það upp seinna. Til að stytta okkur stundir á þessum tveimur frídögum ákváðum ég Reed og Braden að hafa Harry potter maraþon. Byrjuðum á mánudagskvöldinu, horfðum reyndar  þá bara á fyrstu myndina. Svo á þriðjudeginum horfðum við á næstu fjórar. Svo var venjulegur skóladagur á miðvikudeginum og svo á fimmtudeginum var hálfur dagur þannig við vorum búin klukkan 12:30. Eftir skóla kláruðum við síðustu þrjár Harry Potter myndirnar. Þannig þær verða ferskar í minninu þegar við förum í Universal Studios i janúar J

Svo núna um helgina gerði ég ekkert mikið. Á laugardaginn var reyndar pumpkin chunkin í kirkjunni, vorum eitthvað að leika okkur með grasker. Það var graskersfræspýtikeppni, pumpkin pie kappát ég tók að sjálfsögðu þátt, var held ég fjórða og það var sérstaklega minnst á það að ég hafði verið með hreinasta andlitið eftir kappátið, var ekkert að dýfa andlitinu mínu í þetta samt var ég ekkert langt á eftir fólkinu sem vann J svo gerðum við eitthvað semí svipað angry birds, vorum í þriggja manna liðum með stóra teygju, tveir héldu henni á endanum og einn skaut graskerjum í bangsa, var ótrúlega gaman. Svo var einn maður úr kirkjunni búinn að smíða vél til að skjóta graskerjunum alveg frekar langt, set mynd neðar í bloggið J
Svo seinnipartinn fórum ég, Traci, Reed og Braden í mollið og ég keypti nokkrar jólagjafir.
Svo á sunnudaginn var bara kirkja og svo heim að slaka á.

graskerjafræsspýtikeppni
Kappát

Held að þetta sé allt í bili, Thanksgiving er eftir sirka tvær vikur þannig ég hugsa að ég hendi inn stuttu bloggi eftir það .

Þangað til næst J
-Margrét