
Jæja loksins blogg. Biðst afsökunar á bloggleysinu, hefur
einhvern veginn alltaf eitthvað annað verið að gera en að setjast niður og
blogga.
Ég bloggaði síðast um miðjan september, alveg heellingur
búið að gerast síðan þá. Ætla að segja frá þvi helsta sem hefur gerst, vona að
ég gleymi ekki neinu merkilegu.
Næst síðustu helgina í september var Hayride hérna heima hjá
mér. Þetta er haldið af kirkjunni, fjölskyldan mín bauð bara fram húsið sitt,
þar sem þau eiga alveg freeekar stórt hús, stóra lóð og stórann bílskúr haha.
Þetta er semsagt árlegur atburður í kirkjunni, þegar það er gott veður koma
yfirleitt 160-180 manns, held það hafi verið svona 120 í ár. Allir koma um
5-leytið, borða og svo bara tjill. Þetta heitir Hayride þvi þau eru með alveg
frekar stórann vagn tengdann aftan í tractor, og Scott keyrir fólkið um og
maður situr á heyböggum, alveg frekar nett. En já útaf þessu vorum við með svín
í garðinum frá mánudegi til miðvikudags. Scott skaut það á miðvikudeginum, tók
öll innyflin og það úr og fór með það í
geymslu þar til á föstudeginum þar sem það var sett í einhvað eins og stórt
grill til að elda það og það var eldað í sólarhring. Var alveg frekar gott J Svo var líka
pie-keppni þarna, ég var í dómnefnd, alveg frekar fínt fekk fullt að borða haha
J
Fyrstu helgina í október var AFS námskeið. Við fórum saman
fjórir skiptinemarnir hérna á svæðinu ég, Signe, Tim og Johana og Carissa(host
systir min) keyrði okkur. Þetta var tvo tíma í burtu. Þegar við komum þangað
sem námskeiðið var tjilluðum við bara í smá stund með öllum hinum skiptinemunum
og fórum svo að borða. Eftir matinn fórum við aftur út og satum öll i kringum
bonfire(eld) og borðuðm smores. Fórum svo aftur inn og þá var fyrirlestur í örugglega 2 tíma, held að
þetta hafi verið lengstu tveir tímar lífs míns,
var svo ógeðslega þreytt og alveg að sofna nánast allann tímann. Svo
eftir það fórum við bara að sofa.
Vöknuðum daginn eftir, fórum og fengum okkur morgunmat og svo var annar fyrirlestur, samt skárri en daginn áður. Svo fórum við í teambulding í svona klukkutíma, þar var mjög gaman. Svo eftir það var hádegismatur. Eftir matinn fórum við zip lineing, var óógeðslega gaman. Svo var annar fundur eða fyrilestur og svo fórum við bara heim.
Vöknuðum daginn eftir, fórum og fengum okkur morgunmat og svo var annar fyrirlestur, samt skárri en daginn áður. Svo fórum við í teambulding í svona klukkutíma, þar var mjög gaman. Svo eftir það var hádegismatur. Eftir matinn fórum við zip lineing, var óógeðslega gaman. Svo var annar fundur eða fyrilestur og svo fórum við bara heim.
| ég og Signe(Danmörk) tilbúnar að fara zip-lineing |
| Haha, Harry(Kína) ætlaði að fara á hvolfi en setti fæturna einhvern veginn vitlaust uppá línuna og festist, reif buxurnar sínar. |
| SNACKS! Eitthvað svona til að narta í á milli stóru máltíðanna í matsalnum. Get svo svarið það að við borðuðum stanslaust þessa helgi. |
Helgina 19.-21. Október var homecoming helgin. Á föstudeginum var bara venjulegur skóladagur
þangað til í síðasta tímanum var pep-rally. Það var ekkert voðalega merkilegt,
bara allir í íþróttasalnum. Voru einhverjar keppnir og svo var keppni hverjir
gætu öskrað hæst á milli allra árganganna. Mest keppni á milli seniors og
juniors og juniors unnu, ekki sanngjarnt þar sem við vorum miiklu háværari en
þau. Svo seinnipartinn var parade í Watsontown, allir árgangarnir voru búnir að
gera float, og svo var svona hálfgerð skrúðganga og allir sem voru í
skrúðgöngunni voru að gefa nammi. Svo um kvöldið var homecoming fótboltaleikurinn.
Var mjög gaman og við actually unnum leikinn, fyrsti leikurinn á tímabilinu.
Junior-arnir héldu áfram að stela verðlaunum af okkur seniors þar sem þau unnu
líka fyrir flottasta homecomming float, ekki sanngjarnt þar sem okkar var miklu
flottari.
Á laugardeginum var svo ballið. Við fórum stór hópur saman, hittumst svona klukkutíma fyrir ballið og tókum myndir og fórum svo á ballið. Það var ekkert spes, eiginlega eins og grunnskólaball, var haldið í skólanum og búið klukkan 10:30. Eftir ballið fór ég svo bara heim.
Á laugardeginum var svo ballið. Við fórum stór hópur saman, hittumst svona klukkutíma fyrir ballið og tókum myndir og fórum svo á ballið. Það var ekkert spes, eiginlega eins og grunnskólaball, var haldið í skólanum og búið klukkan 10:30. Eftir ballið fór ég svo bara heim.
| The parade, Klappstýrurnar, kemur smá myndasyrpa frá þessu :) |
| Freshmens |
| Aftur |
| Sophmores |
| Juniors, náði ekki nógu góðri mynd, var of upptekin að grípa nammi, en þetta var þannig að strákurinn á að vera að gera málverk af stelpunni. Þetta vann... |
| Seniors, klárlega flottast |
![]() |
| Homecoming |
Á sunnudeginum eftir kirkju fór ég með youth group-num i kirkjunni á svona
shooting range þar sem við gátum prófað allskonar byssur. Ótrúlega gaman.
![]() |
| byssó |
Þar síðasta föstudag fór ég með fótboltanum á haunted house,
það var ótrúlega gaman haha gott hópefli. Svo daginn eftir spilaði ég svo
síðasta fótboltaleikinn minn þangað til ég kem heim. Við komust semsagt áfram í
district keppnina en töpuðum fyrsta leik. Spiluðum í heildina 19 leiki, unnum
17 töpuðum tveimur. Een ég fer svo í körfubolta núna fljótlega til að halda mér
í formi. J
Svo eins og fkestir vita þá var fellibylurinn Sandy að fara
yfir Bandaríkin núna í síðustu viku. Við áttum að fá mjög slæmt veður her
þannig það var enginn skóli á mánudeginum né þriðjudeginum. Veðrið var samt
ekkert svo slæmt her hefðum alveg getað farið í skólann báða dagana, var samt
mjöög þægilegt á fá auka frídaga, en við þurfum víst að bæta það upp seinna.
Til að stytta okkur stundir á þessum tveimur frídögum ákváðum ég Reed og Braden
að hafa Harry potter maraþon. Byrjuðum á mánudagskvöldinu, horfðum reyndar þá bara á fyrstu myndina. Svo á þriðjudeginum
horfðum við á næstu fjórar. Svo var venjulegur skóladagur á miðvikudeginum og
svo á fimmtudeginum var hálfur dagur þannig við vorum búin klukkan 12:30. Eftir
skóla kláruðum við síðustu þrjár Harry Potter myndirnar. Þannig þær verða
ferskar í minninu þegar við förum í Universal Studios i janúar J
Svo núna um helgina gerði ég ekkert mikið. Á laugardaginn
var reyndar pumpkin chunkin í kirkjunni, vorum eitthvað að leika okkur með
grasker. Það var graskersfræspýtikeppni, pumpkin pie kappát ég tók að
sjálfsögðu þátt, var held ég fjórða og það var sérstaklega minnst á það að ég
hafði verið með hreinasta andlitið eftir kappátið, var ekkert að dýfa andlitinu
mínu í þetta samt var ég ekkert langt á eftir fólkinu sem vann J svo gerðum við
eitthvað semí svipað angry birds, vorum í þriggja manna liðum með stóra teygju,
tveir héldu henni á endanum og einn skaut graskerjum í bangsa, var ótrúlega
gaman. Svo var einn maður úr kirkjunni búinn að smíða vél til að skjóta
graskerjunum alveg frekar langt, set mynd neðar í bloggið J
Svo seinnipartinn fórum ég, Traci, Reed og Braden í mollið og ég keypti nokkrar jólagjafir.
Svo seinnipartinn fórum ég, Traci, Reed og Braden í mollið og ég keypti nokkrar jólagjafir.
Svo á sunnudaginn var bara kirkja og svo heim að slaka á.
![]() |
| graskerjafræsspýtikeppni |
![]() |
| Kappát |
Held að þetta sé allt í bili, Thanksgiving er eftir sirka tvær
vikur þannig ég hugsa að ég hendi inn stuttu bloggi eftir það .
Þangað til næst J
-Margrét
-Margrét




Skemmtilegt blogg hjá þér Margrét mín. Alltaf tekst þér að vera með eitthvað í bloggunum sem við vorum ekki búin að heyra og svo er líka algjör bónus að sjá myndirnar.... :-).
ReplyDeleteKnús á þig :-) - mamma
Gaman að lesa, hljómar allt mjög skemmtilega.. og Bandarískt ;)
ReplyDeleteKveðjur frá Ítalíu.