Ákvað að búa til þessa síðu til að hafa á meðan ég verð úti
og ákvað að gera eitt blogg svona til að kynna mig.
Já ég heiti semsagt Margrét Dögg Vigfúsardóttir, er 17 ára
og bý í Reykjavík. Ástæðan fyrir því að búa þetta blogg til er að ég er að fara
sem skiptinemi til Bandaríkjanna í heilt ár og ætla að blogga um reynsluna og
hvað er í gangi hjá mér þarna úti. Ég er orðin mjög spennt fyrir ferðinni en
mig hefur alltaf langað að prófa að búa í öðru landi og leit því á þetta sem
mjög gott tækifæri og fæ að eignast nýja fjölskyldu,nýja vini í nýju landi og
kynnast nýrri menningu og siðum.
Ég er semsagt að fara til Pennsylvaniu sem er á Austurströnd
Bandaríkjanna. Ég er komin með fjölskyldu sem býr aðeins fyrir utan lítinn 4000
manna bæ sem heitir Watsontown. Fjölskyldan mjög stór en er þannig að það eru
foreldrar, Traci og Scott og fjögur börn, Miranda, (veit ekki aalveg hvað hún
er gömul en hún er allavegna flutt að heiman en býr í bæ sem er svona 30 km frá
heimilinu þeirra), Carissa sem er ári eldri en ég semsagt fædd 1994, hún fer í
háskóla núna í haust þannig hún verður lítið heima, svo eru 12 ára
tvíburastrákar, Reed og Braden. Svo eru líka tvær ömmur inná heimilinu Patsy og
Bonita. Ofan á þetta allt eiga þau hund, tvo ketti, snák og fisk.
Fjölskyldan. Vantar
samt elstu stelpuna.
Mér líst alveg rosalega vel á þetta fólk og er líka mjög spennt að fara út og hitta þau loksins eftir að hafa verið í tölvupóstasambandi við þau síðan í apríl.
Ég fer í svona high school sem er skilst mér ekkert svo
langt frá þar sem ég bý, semsagt aðeins fyrir utan bæinn. Skólinn heitir
Warrior Run high og það eru um 650 nemendur í honum. Ég var mjög ánægð þegar
Traci, mamman, sagði mér að það væri fótboltalið í skólanum þannig ég get æft
fótbolta í einhvern hluta af árinu en ætla svo líka í frjálsar íþróttir.
Fótboltaliðið þarna er víst voðalega gott en þær eru tvöfaldir eða þrefaldir
state champions. Ég varð svolítið stressuð þegar ég sá hvað ég verð í litlum bæ
hvort það væri almennilegt fótboltalið í skólanum en ég er búin að æfa fótbolta
síðan ég var 9 ára og ekki aalveg til í að sleppa því í heilt ár.
Ég var líka að komast að því að það verður annar
skiptinemi í skólanum mínum, dönsk
stelpa. Ég held að það sé alveg svolítið þægilegt svona fyrstu dagana því þá
erum við alveg í sömu aðstæðum að þekkja engann og ekki vita neitt haha.
En já það er orðið fáranlega stutt í þetta, bara 18 dagar í brottför. Er held ég búin að gera allt sem ég þarf að gera,
komin með dvalarleyfið og allt klárt J.
Ég blogga svo aftur þegar ég kem út eða eitthvað J
Þangað til næst..

Jej jej jibbí jej
ReplyDeleteEins gott að þú verðir dugleg að segja okkur frá þessu öllu saman :-)
ReplyDeleteHlakka til að fylgjast með þér !
ReplyDeletebloggi? <3
ReplyDelete