Sunday, July 22, 2012

Fyrsta blogg


Ákvað að búa til þessa síðu til að hafa á meðan ég verð úti og ákvað að gera eitt blogg svona til að kynna mig.

Já ég heiti semsagt Margrét Dögg Vigfúsardóttir, er 17 ára og bý í Reykjavík. Ástæðan fyrir því að búa þetta blogg til er að ég er að fara sem skiptinemi til Bandaríkjanna í heilt ár og ætla að blogga um reynsluna og hvað er í gangi hjá mér þarna úti. Ég er orðin mjög spennt fyrir ferðinni en mig hefur alltaf langað að prófa að búa í öðru landi og leit því á þetta sem mjög gott tækifæri og fæ að eignast nýja fjölskyldu,nýja vini í nýju landi og kynnast nýrri menningu og siðum.

Ég er semsagt að fara til Pennsylvaniu sem er á Austurströnd Bandaríkjanna. Ég er komin með fjölskyldu sem býr aðeins fyrir utan lítinn 4000 manna bæ sem heitir Watsontown. Fjölskyldan mjög stór en er þannig að það eru foreldrar, Traci og Scott og fjögur börn, Miranda, (veit ekki aalveg hvað hún er gömul en hún er allavegna flutt að heiman en býr í bæ sem er svona 30 km frá heimilinu þeirra), Carissa sem er ári eldri en ég semsagt fædd 1994, hún fer í háskóla núna í haust þannig hún verður lítið heima, svo eru 12 ára tvíburastrákar, Reed og Braden. Svo eru líka tvær ömmur inná heimilinu Patsy og Bonita. Ofan á þetta allt eiga þau hund, tvo ketti, snák og fisk.

Fjölskyldan. Vantar samt elstu stelpuna.

Mér líst alveg rosalega vel á þetta fólk og er líka mjög spennt að fara út og hitta þau loksins eftir að hafa verið í tölvupóstasambandi við þau síðan í apríl.

Ég fer í svona high school sem er skilst mér ekkert svo langt frá þar sem ég bý, semsagt aðeins fyrir utan bæinn. Skólinn heitir Warrior Run high og það eru um 650 nemendur í honum. Ég var mjög ánægð þegar Traci, mamman, sagði mér að það væri fótboltalið í skólanum þannig ég get æft fótbolta í einhvern hluta af árinu en ætla svo líka í frjálsar íþróttir. Fótboltaliðið þarna er víst voðalega gott en þær eru tvöfaldir eða þrefaldir state champions. Ég varð svolítið stressuð þegar ég sá hvað ég verð í litlum bæ hvort það væri almennilegt fótboltalið í skólanum en ég er búin að æfa fótbolta síðan ég var 9 ára og ekki aalveg til í að sleppa því í heilt ár.

Ég var líka að komast að því að það verður annar skiptinemi  í skólanum mínum, dönsk stelpa. Ég held að það sé alveg svolítið þægilegt svona fyrstu dagana því þá erum við alveg í sömu aðstæðum að þekkja engann og ekki vita neitt haha.

En já það er orðið fáranlega stutt í þetta, bara 18 dagar í brottför. Er held ég búin að gera allt sem ég þarf að gera, komin með dvalarleyfið og allt klárt J.

Ég blogga svo aftur þegar ég kem út eða eitthvað J
Þangað til næst..


4 comments: