Wednesday, September 19, 2012

Ferðsagan og Fyrsti mánuðurinn


Hæhæ.

Jæja þá er ég búin að vera hérna í Bandaríkjunum 1 mánuð ! :D
Hef ekki fundið nógu mikinn tíma til að blogga undanfarið, búið að vera alveg frekar mikið að gera. En ég ætla að segja frá ferðalaginu og svo svona því merkilegasta sem hefur gerst hjá mér J Bara að vara ykkur við að þetta blogg verður laaaangt..

Ferðalagið og fyrstu dagarnir.

Fimmtudagur: Ég og Grétar hittumst á flugvellinum um 8 um morguninn og tjékkuðum okkur inn. Svo var bara að kveðja fjölskylduna, það tók smá tíma og svo fórum við bara í öryggistjékkið og það. Við tjilluðum bara í flugstöðinni í svona tvo tíma og svo fórum við að labba að hliðinu, fara í gegnum vegabréfaeftirlitið og það. Svo tók við 6 tíma flug til New York og við komumst að því að það var sænskur skiptinemi í flugvélinni með okkur, komumst reyndar bara að því þegar við vorum komin út úr flugstöðinni úti. Þegar við lentum New York tók við lööööng röð í immigration tjekkið. Held að það hafi liðið tveir tímar frá því að vélin lenti og þangað til við komumst í gegnum þetta tjékk. Svo var einhver AFS kona sem tók á móti okkur. Grétar fór í sér leigubíl á annann flugvöll eða ehv því hann þurfti að taka annað flug en ég og Amanda(sænski skiptineminn) fórum saman í leigubíl á annað hótel. Þar voru fullt af skiptinemum og við vorum öll bara í tölvunni eða að horfa á Ólympíuleikanna til að drepa tímann. Þarna voru krakkar frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Taílandi, Ítalíu og örugglega einhverjum fleiri löndum. Svo klukkan sex fór ég uppí rútu með svona 20 krökkum. Ég hélt að þessi rútuferð myndi taka svona 2 tíma en hún tók 5 og hálfann tíma því við þurftum að stoppa til New Jersey því að einhverjir krakkar fóru út þar. Ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert. Við semsagt fórum í þessari rútu á annað hótel þar sem arrival námskeiðið var og þegar við komum fórum við öll bara beint uppí herbergi að sofa.

Basic flugvélamynd

Föstudagur: Vöknuðum um 8 leytið, klæddum okkur og gerðum okkur til og fórum svo niður í morgunmat á hótelinu klukkan 9. Eftir matinn fórum við aftur í herbergin og tókum dótið okkar út því við áttum að vera komin útúr herbergjunum klukkan 11. Svo tókum við bara dótið og fórum með það inní fundarherbergi þar sem það var farið yfir fullt af hlutum með okkur. Svo klukkan tvö kom fjölskyldan að sækja mig og við keyrðum bara heim sem tók svona einn og hálfann tíma. Svo þegar við komum heim þurfti ég að fara í einhverja læknisskoðum svo ég geti æft fótbolta hérna úti. Svo tók ég bara uppúr töskunum og slakaði á og svo seinna um kvöldið fór ég út með Carissu að hitta vini hennar. Svo komum við heim um 12 leytið og fórum bara beint að sofa.

Laugardagur: Vöknuðum klukkan 8 og fórum yfir til systur Traci, Heather og gerðum maís. Við semsagt þurftum að taka allt græna dótið utan af og svo var þetta soðið og svo skárum við maísinn af. Við vorum í alveg þrjá tíma að þessu en þetta var samt mjög gaman. Svo borðuðum við bara hádegismat hjá þeim og fórum svo heim og höfðum okkur til og fórum svo út að borða. Svo fórum við bara heim og fórum snemma að sofa, eða allavegna ég þar sem ég sofnaði klukkan 10.

Sunnudagur: Fórum í kirkjuna um hálf 10 leytið. Kirkjan hérna er allt öðruvísi en venjuleg kristin kirkja á Íslandi. Ég fer fyrst í hóp með krökkum á high school aldri og við erum í klukkutíma að tala saman um eitthvað úr biblíunni eða eitthvað svoleiðis. Svo er messan í svona 2-2 og hálfann tíma. Fyrsta klukkutíman er hópur af svona 8 að syngja og allir syngja með og svoleiðis, svo talar presturinn í svona klukkutíma eða rúmlega það. Svo eftir messuna var koddaslagur í youth group-num í kirkjunni. Ég fór þangað með Carissu, Braden og Reed og við vorum þar til svona 3 minnir mig og fórum svo bara heim.

Fjölskyldan er mjög fín og húsið mjög flott. Er alveg frekar stórt og er á þremur hæðum. Herbergið mitt er mjög fínt og alveg semí stórt og með frekar stóru rúmi, sem ég nýti mér alveg. F
Það er alveg búið að vera frekar mikið að gera þennan fyrsta mánuð hjá mér. Skólinn er kominn á fullt og dagarnir alveg semí pakkaðir.
Stærsti hlutinn af herberginu mínu

Venjulegur vikudagur er þannig að ég þarf að vakna um 6:30 til að gera mig til fyrir skólann, svo förum ég Reed og Braden í skólabílinn um 7:15. Svo er skólinn frá 8:03 til 3:06 og þá þarf ég nánast að hlaupa í skápinn minn til að taka bækurnar sem ég þarf að taka með mér heim, troða þeim í töskuna mína og drífa mig yfir í klefann þar sem við skiptum um föt fyrir fótboltaæfingu, æfingarnar eru yfirleitt búnar milli 5:30 og 6. Þegar ég kem heim geri ég bara heimavinnuna og slaka smá á og fer snemma að sofa.

Mér líst mjög vel á skólann, krakkarnir mjög fínir og kennararnir líka. Veit ekki hvað ég hef þurft að segja eftirnafnið mitt oft síðan ég kom hingað, allvegna mjööög oft og enginn virðast ná að segja það rétt. Það finnst öllum það fáranlega langt og ótrúlega erfitt að segja það, ég þurfti einhvern tímann að skrifa nafnið mitt niður á æfingu, man ekki afhverju en allt liðið þurfti að horfa á mig skrifa það, það var alveg frekar fyndið.

En já stundataflan mín er svona:
1. Home room(förum alltaf þangað í fyrsta tíma og gerum bara heimavinnu ef við þurfum þess eða við getum farið að hitta kennara ef við eigum erfitt með eitthvað í einhverju fagi. Ég þarf yfirleitt ekkert að læra í þessum tímum þannig ég fer oft yfir í stofuna við hliðiná minni með nokkrum stelpum úr fótboltanum því sú stofa er loftkæld og það er alveg frekar heitt í þeim stofum sem eru ekki loftkældar, ég held að það verði ekkert mikið lengur samt því það er aðeins farið að kólna, er samt alveg uppí 30°C ennþá samt yfirleitt svona 25°C.)
2. Chemistry
3. Algebra 2
4. Foundations of fitness(man ekki alveg nafnið á þessum tíma en við erum bara að lyfta og svoleiðis)
5. Study hall(bara að gera heimavinnu)
6. Sociology
7. Matur
8. History of government
9. Enska
10. Spænska.

Fótboltinn er mjög fínn. Svolítið erfitt fyrstu tvær vikurnar því það var svo ógeðslega heitt og fáranlega rakt loft og við vorum að æfa í 5 tíma á dag. Frá 8-10:30 var yfirleitt hlaup og stundum smá fótbolti og svo sprettir í lokin. Og svo frá 2:30-5 þá var fótbolti og svo aftur sprettir í lokin. Þessar tvær vikur voru ógeðslega erfiðar en skila sér vel útá fótboltavellinum núna þar sem við virðumst yfirleitt vera í betra formi en liðin sem við höfum spilað við.
Er búin að spila held 6 eða 7 leiki fyrir skólaliðið. Fyrstu þrír leikirnir voru á Scrimmage day(æfingadagur) og við unnum alla og ég skoraði 3 mörk fyrir varsity liðið. Svo erum við búnar að spila fjóra leiki í móti núna og búnar að vinna alla, mér hefur ekki enn tekist að skora en ég er búin að fá færi til þess en það hlítur að fara að koma, er yfirleitt að spila frammi eða á vinstri kanti. Fótboltatímabilið er bara þrír mánuðir og allir leikirnir alveg semí þéttir saman. Spiluðum fjóra leiki á 8 dögum. Eru yfirleitt 2-4 leikir í viku. Eigum skráða 18 leiki núna en ef okkur gengur mjög vel komumst við í District og þá spilum við fleiri leiki, veit samt ekki alveg hvernig þetta virkar haha.

Ég er búin að fara á þrjá fótboltaleiki hjá skólaliðinu(amerískur fótbolti). Skil þessa íþrótt engann veginn, eina sem ég skil eru touchdowns haha. En liðið okkar er alveg frekar lélegt og búið að tapa öllum leikjunum frekar stórt, fólk er ekkert mikið að búast við því að þeir séu að fara að vinna leiki. Samt mjög gaman að fara og hitta stelpurnar úr fótboltanum og fólk úr skólanum.

Ég fór með fjölskyldunni til Colarado og Wyoming um miðjan ágúst. Var mjög gaman. Fórum af stað á þriðjudagskvöldi og þetta var 32-34 tíma bílferð, kom mér á óvart hvað það var samt gaman haha. Við fórum í gegnum fullt af fylkjum þannig ég get sagst hafa komið til held ég svona 11-12 fylkja man ekki alveg Traci var að telja þetta upp um daginn.
Við stoppuðum meðal annars í Mount Rushmore, Crazi horse og keyrðum í gegnum Badlandsnational park á leiðinni.

Badlands
Badlands, var ógeðslega mikið rok 


Mount Rushmore og fánar allra fylkjanna


Mount rushmore

Crazy horse, ekki nærrum því tilbúið. Er í minningu um einhvern indjána

Hvernig þetta á að líta út, fyrir utan konuna sem var að þvælast fyrir þegar ég tók myndina.



Við gerðum margt mjög skemmtilegt á þessum 5 dögum sem ferðalagið tók. Við stoppuðum í Wyoming í eina nótt og hittum ættingja Traci minnir mig, skoðuðum okkur aðeins um í Cheyenne minnir mig og fórum svo í moll að versla, það var mjög gaman. Svo um kvöldið fórum við að borða á Casa Bonita, mexíkanskur staður, maturinn er alltí lagi en það er en maður er frekar að fara þarna fyrir showið, meðan maður borðar getur maður horft á allskonar skemmtiatriði og svo eru einhverjir kallar að labba um og spila tónlist og svoleiðis.

Casa Bonita
Eftir matinn fórum við bara á hótelið okkar í Denver, tjékkuðum okkur inn og fórum að sofa. Daginn eftir hittum við aðra ættingja Traci og fórum í bíltúr með þeim allann daginn, svo fórum við út að borða aftur um kvöldið. Svo á laugardeginum fórum við í fiðrildagarð, ógeðslega flott, við vorum þar í svona 4 tíma sirka og svo fórum  við aftur af stað heim það voru aðrir 34 tímar. Við komum heim klukkan 3 aðfaranótt mánudags því við stoppuðum frekar oft á leiðinni, og ég þurfti svo að fara á æfingu klukkan 8 um morguninn daginn eftir, var freeekar þreytt.

Fékk loksins Mcdonalds :) !
Fiðrildagarðurinn

Fiðrildagarðurinn

Svo núna síðustu helgi fór ég til Baltimore með AFS. Scott keyrði mig, Signe (Danmörk),Tim (Þýskaland) og Johana (Þýskaland) til Harrisburg á laugardaginn og við gistum yfir nótt hjá konu sem var að sjá um þessa ferð. Við vorum komin til hennar um hálf 9 minnir mig og fórum bara að horfa á sjónvarpið og svo tiltölulega snemma að sofa því við þurftum að vakna klukkan 7 á sunnudeginum. Við fórum keyrandi til Baltimore, tók svona einn og hálfann tíma. Þegar við vorum komin þangað hittum við hina skiptinemana, vorum 16 í heildina. Við byrjuðum á því að fara í aqarium-ið þarna. Það var á alveg 4  hæðum minnir mig, bjóst samt við að það væri merkilegra en það var, allir voru búnir að tala um hvað það væri geðveikt flott. Við vorum allann tímann á höfn sem var risastór og flott fullt að skoða. Við fórum á hard rock og fengum okkur hádegismat og fengum okkur svo göngutúr um höfnina og öllum stelpunum til mikillar ánægju fundum við búðir og meðal annars h&m, held að við höfum verið þar inni í allavegna klukkutíma, vorkenndi Tim sem villtist með okkur þarna inn haha. Svo um 5-leytið fórum við heim og ég var komin heim um 9-leytið og fór þá bara að gera heimavinnuna mína.
Hópurinn í Baltimore, 16 skiptinemar og 3 host systkini
 
Bangladesh og Þýskaland

 
Jæja, ég held að þetta sé svona það helsta sem er búið að gerst hjá mér á fyrsta mánuðinum, ætla að reyna að láta ekki líða svona langt þangað til ég blogga næst.
Een þangað til næst J
-Margét

3 comments:

  1. Veiiiii blogg :-). Við vorum auðvitað búin að heyra sumt áður en ekki nærri allt þannig að það var rosagaman að lesa þetta. Vonandi verður allt svona gott áfram :-). Knús ma

    ReplyDelete
  2. Ohh hvað það var gaman að lesa þetta! Vona að þú skemmtir þér konunglega þarna úti, hljómar allt mjög vel :)
    Hvernig hefur annars Amish fjölskyldan það? Allt gott að frétta af henni? :)

    ReplyDelete